Færsluflokkur: Bloggar

Múhameð, kalífarnir og heilagt stríð (frh.2)

Frá þeim tíma fékk Múhameð "opinberanir" sem hann hélt fram að kæmu beint frá Guði. Stundum fylgdu líkamleg einkenni þessum opinberunum. Múhameð heyrði bjölluhljóð, svitnaði ógurlega (jafnvel á köldum dögum), froðufelldi, skrifaði í angist, kastaðist til, velti augunum upp, missti meðvitund og komst í ástand sem líktist transi. Árið 613 hóf Múhameð að predika opinberanir sínar á opinberum vettvangi. Í upphafi var boðskapur hans einfaldur og Múhameð lýsti hlutverki sínu sem bundið við eitt markmið: " Aðeins að vara við" Surah 11: 12. Múhameð predikaði nauðsyn þess að gefa sig Allah á vald og varaði við heimsendi og degi dómsins, þar sem allir voru annað hvort dæmdir til vítiskvala eða leyft að ganga inn í Paradís. Boðskap Múhameðs var tekið fálega og með hæðni og fyrirlitningu af flestum Mekkabúum. Þó sneru nokkrir sér að trúnni, svo sem þræll Múhameðs, ættleiddur sonur hans Zaid, Ali frændi hans og Abu Bakr, náinn vinur hans og sálufélagi til lífstíðar. Höfðingjar Mekka hneyksluðust á framhleypni þessa almúgamanns, sem átti ekkert náttúrulegt tilkall til valda og virðingar, en dirfðist að krefja menn sér æðri um hlýðni. Þeir sáu predikanir Múhameðs gegn skurðgoðum þeirra sem byltingaráform með það að markmiði að grafa undan viðurkenndu þjóðfélagsskipulagi. Þrátt fyrir tilraunir Múhameðs til að skapa sættir með guðfræðilegum málamiðlunum með því að taka við þremur vinsælustu gyðjum Mekkabúa ( dætur tunglguðsins Al-lat, Al-uzza og Manat sem meðalgöngurum milli hinna trúuðu og Allah) hæddu Mekkabúar Múhameð: Hver heldur þessi yfirlætislegi fjárhirðir eiginlega að hann sé? Þessi heigull sem flúði af vígvellinum! Þessi öreigi sem á farsæld sína því að þakka að hafa giftst ekkju sem er nógu gömul til að geta verið móðir hans! Kaldhæðni og illkvittni múgsins varð sífellt ofsafyllri.

 </p (Úr bókinni Slavery, Terrorism and Islam, The historical roots and Contemporary Threat. eftir Peter Hammond, útg. Frontline Fellowship, Cape Town, South Africa, 2010.) Birt með leyfi útg.


Múhameð, kalífarnir og heilagt stríð (1)

Til þess að skilja Íslam, Shariah lög þess, þrælaverslun Múhameðstrúarmanna og hryðjuverk, er nauðsynlegt að við skiljum sögu stofnanda Íslams og kalífanna, arftaka hans. Múhameð, stofnandi Íslam, var fæddur í borginni Mekka árið 570. Samkvæmt múslimskri helgisögn var hann fæddur hreinn, umskorinn, með skorinn naflasteng og hrópaði þegar í stað Allah Akbah! (Guð er mikill!). Faðir hans, Abd Allah lést áður en Múhameð fæddist. Móðir hans Amina ( lasleg kona sem sögð var hafa lagt stund á dulræn fræði og átt það til að verða fyrir ofskynjunum) lést er Múhameð var aðeins sex ára. Múhameð var síðan í umsjá afa síns, Abdul-Muttalib, sem lést þremur árum seinna. Hinum níu ára gamla Múhameð var þá komið fyrir hjá frænda sínum, Abu Talib, sem notaði hann sem úlfaldaekil á einni af úlfaldalestum sínum. Ævisöguritarar hafa skráð að í uppvexti sínum hafi Múhameð verið bitur ungur maður, frústeraður yfir vanmætti sínum, og tilheyrt lægri stigum samfélagsins. Þegar Múhameð var 25 ára, ógnuðu Eþjópíumenn Mekka. Múhameð hljóp burt af vígvellinum og var þá útskúfað félagslega. Hann varð þá fjárhirðir,sem er lægsta félagslega staða í Arabíu. Síðar varð hann aðstoðarmaður farandsala með klæði og það starf færði hann til Hayacha þar sem hann hitti Khadija, auðuga ekkju, 15 árum eldri en hann. Múhameð kom í þjónustu hennar sem úlfaldaekill, og að lokum varð hann yfirmaður hennar. Þegar Khadija valdi að kvænast Múhameð varð umbreyting hans frá fátækt til auðsældar tryggð. Næstu tíu árin færði Múhameð út kvíarnar á fyrirtækjum Khadiju og sýndi færni og hæfileika sem áður höfðu ekki sést með honum. Það var á þessum tíma sem Múhameð byrjaði að hugleiða í einsemd, stundum vikum saman, í hellum Hira fjalls. Það var árið 610, þegar Múhameð var fertugur. að hann greindi Khadiju frá lífsreynslu sem olli honum hugaræsingi. Hann óttaðist að hann væri haldinn illum öndum. Það var þá sem Khadija lýsti því yfir: "Fagnaðu, ó sonur frænda míns, og ver æðrulaus! Af hendi hans sem sála Khadiju hvílir í, vona ég að þú verðir spámaður hans lýðs" Khadija fullvissaði hann um að svo dyggðugur maður sem hann var, gæti ekki verið undir valdi illra anda, heldur skyldi hann taka þessari lífsreynslu sem heimsókn engils og hann skyldi taka á móti kallinu með auðmýkt og gleði. Khadija varð fyrsti Múhameðstrúarmaðurinn. (Úr bókinni Slavery, Terrorism and Islam -The Historical roots and Contemporary Threat. eftir Peter Hammond, útg. Frontline Fellowship, Cape Town, South Africa, 2010.) Birt með leyfi útg.


Mótmæli í Kanada vegna Shariah

sómalía 2009Golrokh Ebrahimi Iraaee skrifaði skáldsögu (óútgefna) um konu sem reiddist er hún horfði á myndina "The stoning of Soraya M" og brenndi Kóraninn. Varla hafði prentsvertan úr ritvélinni þornað á blaðinu þegar Iraaee fékk heimsókn frá fjórum meðlimum Írönsku öryggislögreglunnar sem handtóku hana og mann hennar og vörpuðu þeim í fangelsi þar sem þau máttu þola pyntingar. Iraaee er enn í öryggisfangelsi. Þann 20 sept. sl. voru mótmæli í Kanada vegna þessa, þ.e. vegna Shariah laga í Íran og gegn Íslamska lögregluríkinu þar. Þetta ástand vilja and-kristnir kalla yfir Vesturlönd í nafni opinna landamæra og haturs á kristni. Vesturlönd hafa verið farsæl og blessuð vegna kristninnar sl 500 ár og því liggur straumurinn hingað. En nú hafa Vesturlönd snúið baki við Kristi og hafa þannig hafnað blessun sinni og vernd.  Því munu þau verða kramin af ógurlegu stórveldi eins og spáð er í Daníelsbók og Opinb. Jóh. Þar eru spádómar um ógurlegt and-kristið stórveldi sem niður treður öll lönd og sundur kremur við lok tímanna.

https://www.gettyimages.com/detail/news-photo/protest-against-the-islamic-republic-of-iran-calling-for-news-photo/1036874890

https://simple.wikipedia.org/wiki/Golrokh_Ebrahimi_Iraee


Anti Kristur á Íslandi

Anti Kristur hyggst koma við á landinu í næstu viku og leggja fram þingsályktunartillögu um líknarmorð í þriðja skipti. Þú skalt morð fremja eru einkunnarorð hans. Hann hefur andstyggð á boðorðum Guðs og gefst aldrei upp við að koma brotum á þeim til leiðar. Þing eftir þing eftir þing knýr hann á með málefni dauðans. Hann veit sem er að ef dyrnar eru opnaðar í nafni t.d. mannréttinda, þá verður ekki aftur snúið. Þegar mammmón svo kemst í spilið, síðar meir, þegar harðnar á dalnum þá verður gott að geta létt á fjárhagsbyrðum heilbrigðiskerfisins með því að hvetja sjúklinga með þunga umönnun til að farga sér. Og framhaldið verður viðbjóðslegt!

En boðorð Guðs eru sem klettur aldanna og breytast ekki, en mannlegar tilfæringar eru sem sandurinn síbreytilegi -eitt í dag og annað og verra á morgun, þótt tilgangurinn sé e.t.v. góður í upphafi. Ekki er gott að byggja á slíkum sandi því húsið mun hrynja að lokum og þá fá ýmsir skell. Til dæmis þeir sem styðja frumvarpið. Að lokum, t.d. í harðara og verra framtíðarríki, verða einnig þeir eða afkomendur þeirra veikir eða geðsjúkir eða gamlir og e.t.v. þung byrði á kerfinu. Viltu borga 10 milljónir fyrir sjúkrarúmið eða má bjóða þér líknandi sprautu og hvíldina eilífu?

And Kristurinn er óþreytandi þing eftir þing með málefni tortímingar og dauða. Áfengi í allar búðir, lögleiðing eiturlyfja, líknarmorð, alfrjálsar fóstureyðingar. - og síðast en ekki síst, burt með Nýja Testamentið og Kristinfræði frá grunnskólanemendum, því landið á að verða hundheiðið eða ríki Islams og fara í hundana eins og meginlandið. Allt sem verður þjóðinni til tjóns er hans eftirlæti og það allt í nafni laganna, frelsis og mannréttinda!


Hernaður gegn kristnum ríkjum Evrópu

fer fram á mörgum vígstöðvum. Á bak við hana standa úlfar í sauðargæru hugsjónamennsku. Þeir boða frelsi meðan þeir hafa nokkuð tanna milli. Þeir vilja -frelsa umhverfið og lofthjúpin frá mengun og hita -frelsa konur frá barneignum og barnauppeldi, -frelsa leikskólabörn frá gagnkynhneigð, -frelsa fólk til ferðalaga milli ríkja án vegabréfa -frelsa pyngju fólks frá því að greiða fyrir innlendar vörur, -frelsa fólk til að kaupa vínföng út á næsta horni, -frelsa fólk til að kaupa eiturlyf vandræðalaust, -frelsa milljónir útlendinga frá því að dveljast stundinni lengur í vanþróuðum löndum, -frelsa mannsfóstur frá því að fæðast og frelsa gamalt og veikt fólk frá því að lifa. Þá er hugsjónamönnunum að sjálfsögðu mikils virði -frelsið til að afnema kristna siði og kristna kennslu í menntun barna og innleiða fjölmenningu (sem í raun þýðir Islamvæðingu) og að lokum er ómissandi frelsið til að þagga fljótt og vel niður í öllum þeim sem voga sér að gagnrýna "frelsis"stefnu þeirra.

Frelsis postulunum er ekki síst mikilvægt að frelsa atvinnulíf kristinna Evrópuþjóða frá sjálfstæði og hagvexti. Það er framkvæmt með heilum þjóðarbókhlöðum af íþyngjandi reglugerðum um persónuvernd, kynjakvóta, jafnlaunavottun, kolefnisjöfnun, útblásturskvótun, orkupökkum, o.s.frv. Margir háttsettir í loftlagsbransanum hafa fullyrt að loftslagsmálin snúist ekki um loftslag heldur efnahagsmál. Markmiðið sé að hefta hagvöxt í hinum Vestræna heimi og gefa vanþróuðum löndum forskot. Andi villunnar er við stjórn og kristin og sjálfstæð þjóðríki Evrópu gjalda dýru verði. Þau skulu troðin niður og lögð undir guðlaust heimsveldi.

Boðorð Guðs er Verið frjósöm og uppfyllið jörðina. En stór hluti af baráttumálum frjálslyndra og pólitískt rétttrúaðra snýst ómeðvitað um að minnka frjósemi Evrópubúa ásamt með því að eyðileggja þær kynslóðir sem þó fá að fæðast. öfgafemínisminn er hluti af þessari "frelsis" hreyfingu. Þar er hamrað stöðugt á útrýmingu kynbundins launamunar, sem þýðir í raun að allar konur eigi að taka fullan þátt í atvinnulífinu algerlega til jafns við karla. Þar sem meðganga, barneignir og uppeldi ungbarna er tímafrekt og mjög krefjandi verkefni er fórnarkostnaður barneigna kvenna atvinnuþátttaka og þar með laun kvenna. Því er útilokað að útrýma kynbundnum launamun í Evrópu án þess að minnka eða útrýma frjósemi Evrópskra kvenna, þ.e. með færri eða engum barneignum Evrópskra kvenna. Baráttu femínista miðar enda vel. Fólksfjöldaþróun í álfunni er enda löngu hætt að vera sjálfbær, heldur fækkar innfæddum og þjóðirnar eldast hratt. Því þarf að flytja inn erlent vinnuafl til þess að standa undir efnahagnum. Þá er hendi næst að sækja mjög frjósaman lýð sem siglir undir tunglfána, stundar ekki fósturdráp og viðhefur engar tálmanir á frjósemi heldur þvert á móti.

Ef frelsispostulunum tekst ekki að tálma frjósemi Evrópubúa algerlega t.d. með fósturdrápi, pillu, hærri lögræðis og giftingaraldri, sílengdri skólagöngu, húsnæðisskortsstefnu, opinberum áróðri fyrir ófrjósömum lífsstíl, o.s.frv. vilja frelsispostularnir sjá til þess að enginn móðir verði til staðar á heimilinu fyrstu og mikilvægustu ár ungviðisins hvað þroskavænleika varðar. Mikil nánd við móður (eða einhverja eina trausta og elskandi persónu) fyrstu þrjú árin eru talin afgerandi hvað þroskavænleika varðar. En stefnan er að enginn verði til að ala önn fyrir þeim vesalingum sem þó fá að fæðast, heldur skuli móðirin strax út á vinnumarkað (því annars eykst hinn stórháskalegi kynbundni launamunur). Stofnanir hins opinbera skulu svo sjá um uppeldið frá fyrstu tíð. Með því móti verða til kynslóðir taugaveiklaðra, þunglyndra og andfélagslegra ungmenna sem mynda langar biðraðir á geðdeildir, fangelsi og afvötnunardeildir. Því telja guðlausu "frelsis" hugsjónamennirnir að líkindum nauðsyn að lögleiða eiturlyf, óheftan aðgang að áfengi á næsta götuhorni og líknardráp til að klára verkið sem misfórst að klára í móðurkviði á þeirri kynslóð.


Kann fréttamaðurinn að lesa ensku?

"Fréttamaðurinn" sem ritaði þessa "frétt" skilur greinilega ekki mikla ensku, nema það sé móða á pólítískum rétttrúnaðgleraugum hans.  Trump ræðst hvorki á einn né neinn í þessari Twitter færslu.  Setningu Trumps sem byrjar svona:  "Hvað NFL viðkemur..." Þýðir hann: Meðan NFL sýnir hluttekningu... og restin af þýðingunni er eftir þessu, öllu snúið á haus: ..get ekki horft og mun ekki horfa..BULL  Rétt þýðing:

"Á sama hátt og áhorf NFL deildarinnar hefur hrunið, hefur Nike einnig fengið að finna fyrir reiði og sniðgöngu (almennings). Ég velti því fyrir mér hvort þeir hafi átt von á þessu? Hvað NFL viðkemur, á ég bara erfitt með að horfa, og mun alltaf eiga erfitt með það, þangað til þeir sýna fánanum virðingu."

Er Trump hér að ráðast á Nike?  


mbl.is Trump ræðst á Nike vegna Kaepernick
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

facebook refsar íhaldsmanni og grínara.

Terrence

Facebook suspends conservative comedian&#39;s account

Í stað þess að refsa þeim sem hótuðu íhaldssama grínaranum Terrence K. Williams lífláti á facebook var skrúfað fyrir fjárstreymi til hans og aðgangurinn ritskoðaður. Hann telur að það sé vegna þess að hann sé hörundsdökkur íhaldsmaður, en það líta frjálslyndir á sem liðhlaup. Í þessu stutta viðtali á Fox sjónvarsstöðinni rekur hann málið, en þetta hófst sl.vor.  

Framtíðin (og nútíðin) er víst ritskoðun og bæling íhaldssamra sem lúta ekki vilja frjálslyndu fjölmiðlalygaáróðursmaskínunnar (skammst. fláráð).  Margir íhaldsmenn í USA eru nú uggandi yfir þessarri þróun.  Staðan hér á landi er sú að frjálslyndur pólitískur áróður er yfirþyrmandi í fréttamiðlum. Báðar hliðar málsins eru ekki birtar. Grínarar hafa talsvert fjallað um hvað frjálslyndur pólitískur rétttrúnaður sé að drepa allan húmor, sér í lagi í háskólum.

 

 

 


Langveikum manni boðið líknardráp er hann biður um betri þjónustu.

Roger Foley á ekki sjö dagana sæla. Hann lenti á sjúkrahúsi og kemst ekki auðveldlega heim til sín því hann þarf mikla þjónustu. Honum var gert að velja milli þess að borga milljónir fyrir sjúkrahúsleguna, þiggja líknardráp eða fara heim þjónustulaus (eða með lélega þjónustu). Hér sést svart á hvítu hvert leiðin liggur í and-kristna framtíðarríkinu, sem stendur við dyrnar og knýr á. Vestræn samfélög  hamast við að saga greinina sem þau sitja á og hafa hent  algildum siðaboðskap Krists og 10 boðorðum í glatkistuna. Slíkt guðlaust ástand samfara mammónsdýrkun býður upp á framtíðarríki þar sem mannlegt líf er lítils metið, sér í lagi líf þeirra veiku og varnarlausu.

roger-foley-11-768x576

 

Euthanasia’s Slippery Slope Goes to Court

London man with lifelong illness sues government after being denied self-directed homecare funding

https://www.washingtontimes.com/news/2018/mar/19/canada-denied-care-terminal-patient-offered-assist/


Hvað eiga kommúnistar, femínistar, frjálslyndir og íslamistar sameiginlegt?

Íslam og kristni eru fornir fjendur. Sagan ber þess vitni. Af hverju umfaðma sundurleitir menningarhópar á Vesturlöndum þá Íslam og vilja veg þess sem mestan hér í álfu, sem nefnd hefur verið Hin kristna álfa? Hver er samnefnarinn milli þessara ólíku hópa? Mótsagnirnar eru himinhrópandi; Islam er t.d. eins andsnúið framgangi baráttumála femínista og hugsast getur. En áðurnefndir hópar eru líkt og í álögum. Ósýnilegir þræðir liggja á milli þeirra.

Það sem þessir hópar eiga sameiginlegt er tómlæti,andúð eða hatur á kristindóminum. Um það snýst þessi stuðningur hópanna við framgang Íslams í Evrópu í raun. Markmiðið er að velta kristindóminum úr sessi. Kommúnisminn er guðlaus stefna eins og sagan sýnir. Róttæk femínisk hugmyndafræði hefur einnig ætíð haft horn í síðu kristindómsins. Frjálslyndir og guðleysingjar eru í raun húmanistar sem vilja ekki byggja húsið á bjargi (lúta absalút siðaboðum kristindómsins), heldur setja mannlegan breyskleika í öndvegi. Ávextir slíks guðleysis eru að mörkin færast sífellt nær hliðum heljar. -lögleiðing eiturlyfja -líknarmorð -alfrjálsar fóstureyðingar o.s.frv. Íslamistar hata krossinn og kristni og vilja eyða henni. Andúð eða hatur á kristindóminum er samnefnarinn. Það er vonlaust að Ísland standi til lengdar utan við guðlausa og and-kristilega, Islam-undirgefna heimsveldið ESB ef kristindómur verður ekki endurreistur á landinu. Látum í okkur heyra kristnir menn. Látum ljós okkar skína!


Dr. Berlinski útskýrir vandamálið við Þróunarkenninguna

David Berlinski er einn gáfaðasti maður sem til er. Hann er einnig mjög vel menntaður. Hann er doktor í heimspeki frá Princeton háskóla. Hann hefur kennt heimspeki, stærðfræði og ensku við Stanford, Rutgers og París At Jussieu háskóla, stundað rannsóknir í lífefnafræði við Columbia háskóla, og einnig stundað rannsóknir við The International Institute for Applied Systems Analysis (IIASA) í Austurríki og rannsóknir í stærðfræði og kennilegri eðlisfræði við Institut des hautes études scientifiques (IHÉS) í Frakklandi. Meðal ritverka hans eru "On Systems Analysis: An Essay Concerning the Limitations of Some Mathematical Methods in the Social, Political, and Biological Sciences. Cambridge, MA: MIT Press". Hann hefur skrifað greinar í vísindatímarit og fræðibækur um Calculus, System Analysis, Diffrential topology (stærðfræði), Analytic philosophy, heimspeki stærðfræðinnar, sögu stærðfræðinnar, ásamt skáldritum, ótal blaðagreinum o.fl.

Dr. Berlinski skrifaði bókina "The Devils Delusion: Atheism and its Scientific Pretensions" til mótvægis við bók Richard Dawkins "The God Delusion". Fyrirlestrar Berlinski eru mjög áhrifamiklir og er linkur hér á tvo slíka sem fjalla um vísindaleg efni. Í viðtali við hann í myndinni "Expelled, no Intelligence allowed" lýsir Berlinski Þróunarkenningunni við reykfyllt herbergi.  Berlinski segir Þróunarkenningu Darwins ekki vera raunveruleg vísindi og bendir á nokkra afgerandi galla á kenningunni. Mörk milli tegunda virðist órjúfanleg. Tilraunir staðfesti ekki kenninguna, skili engu, ekkert nálægt lífi kvikni og pöddur séu og og verði pöddur, sama hvað. Engin millistig tegunda finnist í jarðlögum, þótt urmull ætti að vera til staðar. Reiknilíkön byggð á forspám kenningarinnar spái aukningu í óreiðu en ekki þróun, stökkbreytingar séu undantekningalaust neikvæðar fyrir lífveruna o.s.frv. Að lífverur breytist í lagardýr í láðsdýr og öfugt sé stærðfræðilega ekki mögulegt vegna tugþúsunda eða milljóna grundvallarbreytinga á líffærum sem verði að eiga sér stað samtímis, o.s.frv.

Segir hann að nokkur hópur kollega sinna meðal raunvísindamanna brosi í laumi að henni (en reyndar viðurkenna stuðningsmenn kenningarinnar einnig að hún hafi stóra bresti). Ég minnist þess að Í bók Bills Bryson, Stiklað á stóru um næstum allt, er haft eftir eðlisfræðingum að í þeirra hópi sé ekki litið á steingerfingafræðinga sem alvöru vísindamenn, heldur frekar eitthvað í ætt við frímerkjasafnara. En aftur að Berlinski. Í öðru myndbandinu rekur hann söguna af því þegar Einstein áleit að jöfnur almennu afstæðiskenningarinnar sinnar myndu staðfesta það álit vísindaheimsins að alheimurinn væri frá eilífð og til eilífðar, en síðar kom í ljós að jöfnurnar bentu til þess að alheimurinn ætti sér upphaf; og bakgrunnsgeislunin staðfesti það. Mótstaða vísindaheimsins gegn Big-Bang kenningunni var mikil á sínum tíma og reiðarslag að svo virtist vera sem annar flokkur fagmanna (biblíuprestarnir) hefði haft rétt fyrir sér frá upphafi. Þegar fram í sótti fóru nokkrir vísindamenn sem erfitt áttu með að sætta sig við þessa niðurstöðu að fabúlera um pre- Big Bang, þótt það séu AFAR langsóttar æfingar. Tilgangurinn líklega að endurheimta "prestdóms" stöðu sína í þessum geira í alheimsfræðunum. Berlinski skilgreinir sig sem secular Jew og er enginn bókstafstrúarmaður eða neitt í þá áttina, en er einfaldlega óvenjulega heiðarlegur og óvenjulega vel gefinn vísindamaður.

Ég vil enda bloggið á smá biblíutilvitnun: "Fyrir trú skiljum við að Guð skapaði heimana með orði sínu og að hið sýnilega varð til af hinu ósýnilega" (Hebreabréfið 11:3) og "Í upphafi skapaði Guð himin og jörð."(1.Mósebók)

https://www.youtube.com/watch?v=0XIDykeZplU

https://www.youtube.com/watch?v=S89IskZI740


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband