Upplýsingin étur börnin sín

Í hálft þriðja árhundrað hefur Evrópska "Upplýsingin" hreykt sér yfir kristna trú og dæmt hana sem órökrétta og óvísindalega. Mannlega skynsemi hefur hún aftur á móti hafið á guðlegan stall og talið hana hið æðsta takmark siðmenntaðra samfélaga.

Það má fyrirgefa átjándu öldinni barnalega bjartsýni og ofurtrú á mátt mannlegrar skynsemi. En það er annað mál að bera slíkt á borð fyrir Evrópu sem hefur gengið í gegnum tvær heimsstyrjaldir og Helför, þrátt fyrir að setja mannlega skynsemi og rökhugsun í öndvegi á öllum sviðum. Þess vegna ákváðu Þjóðverjar eftir hörmungar Þriðja ríkisins að nefna nafn Guðs í stjórnarskránni. Það skipti þá miklu máli. 

Komandi kynslóðir munu óska þess að höfundar Stjórnarskrár Evrópu hefðu nefnt nafn Guðs biblíunnar og hinna kristnu hefða í henni. Þannig yrði það ljóst að Evrópa gæti aldrei orðið "Hús Islam". Við erum á skeiði umburðarlyndis og múslimar eru í minnihluta. Þó eru hermdarverk og við sjáum krauma undir niðri... Með því að sleppa því að nefna nafn hins Gyðing-kristna guðs biblíunnar sem grundvöll menningar okkar höldum við dyrunum opnum í stjórnarskránni fyrir þeirri hugsjón Islam að gera Evrópu að "Húsi Islam". Það er ekki ólíklegt að hin kristna menning Evrópu verði eyðilögð vegna þessa umburðarlyndis og fjölmenningar sem við erum svo stolt af. 

Unnið upp úr texta Ortwin Schweitzer


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband